Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. apríl 2022 var lagt fram bréf íbúaráðs Laugardals dags. 12. apríl 2022 þar sem erindi Þorbergs Halldórssonar, íbúa í hverfinu, dags. 27. mars 2022 um skipulagsmál og umgengni í Vogabyggð svæði 3 er vísað til skipulagsfulltrúa og Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur til svara. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. september 2022.