Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 27. september 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. september 2013 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja skv. meðfylgjandi uppdráttum einbýlishús á lóð nr. 31 við Lambhagaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. október 2013.