Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 27. september 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. september 2013 þar sem spurt er hvort leyft yrði að breyta tannlæknastofu í íbúð á fyrstu hæð hússins nr. 25 við Sólheima. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt frama ð nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. október 2013.