Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. nóvember 2013 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta innra fyrirkomulagi og byggja anddyri við norðurhlið hússins á lóðinni nr. 7 við Grundargerði. Samþykki nágranna í húsum nr. 9 við Grundargerði og nr. 41 við Akurgerði (á teikn.) fylgir erindinu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 11. október 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. október 2013. Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 26. september 2013 fylgir erindinu. Stækkun: Íbúð 4,1 ferm. og 13,0 rúmm. Gjald kr. 9.000
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Akurgerði 33 og 41 og Grundargerði 9.