Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. desember 2018 var lögð fram fyrirspurn Halls Kristmundssonar dags. 23. nóvember 2018 áamt bréfi Mótx ehf. og Félagsbústaða hf. dags. 21. nóvember 2018 um að fjölga íbúðum í húsinu á lóð nr. 12 við Elliðabraut, samkvæmt uppdr. Arkþings ehf. dags. 10. október 2018 og 21. nóvember 2018. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. desember 2018.