Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn
Norðureyjar ehf.
, mótt. 23. nóvember 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 14 við Hrísateig. Í breytingunni felst að þak skal vera lágreist risþak (mænisþak) í stað valmaþaks, samkvæmt uppdr. Hildar Bjarnadóttur ark. og Helgu Lund ark., dags. 18. nóvember 2015. Tillagan var grenndarkynnt frá 8. desember 2015 til og með 5. janúar 2016. Engar athugasemdir bárust.