Á fundi skipulagsfulltrúa 12. september 2014 var lögð fram umsókn
Norðureyjar ehf.
dags. 10. september 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Teigahverfis vegna lóðarinnar nr. 14 við Hrísateig. Í breytingunni felst breyting á byggingarreit lóðar, samkvæmt uppdr. Hildar Bjarnadóttur ark. ódags. Umsókninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Sundlaugavegi 8-10, Hrísateig 12, 16, 19, 21 og Gullteig 4.