Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. nóvember 2013 þar sem sótt er um leyfi til þess að innrétta gistiheimili í flokki II með 14 gistirýmum í húsinu á lóðinni nr. 53 við Hverfisgötu.. Gistiheimilið verður rekið í samvinnu við fyrirhuguð gistiheimili að Vatnsstíg 8 og 10B og Hverfisgötu 55. Næturvarsla og þjónusta við gistiheimilin verður staðsett að Vatnsstíg 10B. Gjald kr. 9.000