Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. maí 2017 var lögð fram fyrirspurn Gamla Reykjavík ehf., mótt. 15. mars 2017, um að reisa þyrpingu smáhýsa á lóðunum nr. 53 og 55 við Hverfisgötu, samkvæmt uppdr. Hornsteina arkitekta ehf., dags. 4. apríl 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. maí 2021.