Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, mótt. 14. september 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi Breiðholt I vegna lóðar nr. 1 við Fálkabakka. Í breytingunni felst að færa inn núverandi aðstæður s.s. byggingu, stíg og bílastæði auk þess að færa innkeyrslu, breyta lóðarmörkum, útbúa byggingarreit og skammtímastæði, skv. uppdrætti
Landslags ehf.
, dags. 2. nóvember 2017. Tillagna var auglýst frá 28. nóvember 2017 til og með 9. janúar 2018. Engar athugasemdir bárust.