Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. maí 2022 var lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Breiðholts I vegna lóðarinnar nr. 1 við Fálkabakka. Í breytingunni felst stækkun á skipulagssvæði til norðurs, stækkun á leikskólalóð og núverandi byggingarreit leikskólans ásamt því að bætt er við byggingarreit fyrir tímabundna kennslustofu, samkvæmt uppdr. Landslags dags. 5. maí 2022. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.
Svar
Vísað til skipulags- og samgönguráðs til afgreiðslu.