Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. nóvember 2013 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og útliti, þannig að komið verður fyrir nýrri flóttaleið úr kjallara, skipulag í eldhúsi verður breytt, komið verður fyrir svölum með tröppum niður í garð frá stofu, nýr gluggi settur á norðausturhlið og franskar svalir á rishæð suðvesturhliðar hússins á lóð nr. 36 við Langagerði. Gjald kr. 9.000