Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 29. nóvember 2013 var lögð fram fyrirspurn Nítíu ehf. dags. 27. nóvember 2013 um að breyta atvinnuhúsnæði á lóðinni nr. 93 við Jónsgeisla í íbúðarhúsnæði. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. desember 2013.