Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. febrúar 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja staðsteypta vinnustofu með millilofti upp að útvegg Sólvallagötu 12 á norðurhlið á lóð nr. 2 við Blómvallagötu. Erindi var grenndarkynnt frá 20. febrúar til og með 20. mars 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Sigríður Magnúsdóttir dags. 20. mars 2015. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á fundi skipulagsfulltrúa 27. mars 2015 og er nú lagt fram að nýju. Jákvæð fyrirspurn BN047927 dags. 15. júlí 2014 fylgir. Stærð mhl. 02 er: 40,6 ferm., 127,5 rúmm. Gjald kr. 9.823