Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. febrúar 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja staðsteypta vinnustofu með millilofti upp að útvegg Sólvallagötu 12 á norðurhlið á lóð nr. 2 við Blómvallagötu. Jákvæð fyrirspurn BN047927 dags. 15. júlí 2014 fylgir. Stærð mhl. 02 er: 40,6 ferm., 127,5 rúmm. Gjald kr. 9.823
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Hávallagötu 17 og 21, Sólvallagötu 12 og 14.