Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. apríl 2014 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tvöfaldan staðsteyptan bílskúr á suðaustur hluta og koma fyrir nýrri innkeyrslu inn á lóð nr. 73 við Bergstaðastræti. Erindi var grenndarkynnt frá 9. apríl til og með 7. maí 2014. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Selma Ósk Kristiansen og Helgi Kristjánsson dags. 16. apríl 2014. Fyrirspurn BN046947 dags. 7. jan. 2014 fylgir. Stærð bílskúrs er: 71,4 ferm., 219,9 rúmm. Gjald kr. 9.500