Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 17. janúar 2014 var lögð fram fyrirspurn Brynjars Halldórssonar og Halldórs Lárussonar dags. 13. janúar 2014 varðandi byggingu frístundahúss á lóð nr. 3 við Mjódalsveg ásamt fóstrun á nærliggjandi landsvæði. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. janúar 2014.