Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 15. maí 2015 var lagt fram erindi skrifstofu borgarstjórnar dags. 13. maí 2015 þar sem óskað er eftir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs á umsókn Nemendafélags Menntaskólans við Hamrahlíð um tækifærisleyfi vegna lokaballs nemendafélags skólans miðvikudaginn 20. maí 2015 í Gamla bíói að Ingólfsstræti 2A, frá kl. 22:00 til kl. 01:00. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. maí 2015.