Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. júní 2018 var lögð fram fyrirspurn Huldu Kristínar Guðmundsdóttur dags. 7. júní 2018 um sameiningu lóðanna nr. 50 og 50B við Grettisgötu án þess að rífa niður byggingar á lóð nr. 50B við Grettisgötu, en óskað er eftir að byggja upp og varðveita byggingarnar. Einnig er lögð fram umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 8. júní 2018. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nyju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. júní 2018.