Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 7. febrúar 2014 var lögð fram fyrirspurn Jóhanns Wium Tómassonar dags. 5. febrúar 2014 um að byggja yfir svalir á suðausturhlið hússins á lóðinni nr. 17 við Langagerði. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. febrúar 2014.