Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 21. febrúar 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. febrúar 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að staðsetja u.þ.b. 7 fermetra stóran pylsuvagn utan lóðar á svæði við Mýrargötu milli Lagargötu og Hlésgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. febrúar 2014.