Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 26. febrúar 2016 var lögð fram fyrirspurn Hildar Bjarnadóttur, mótt. 13. febrúar 2016, um að byggja við húsið á lóð nr. 29 við Suðurgötu, samkvæmt tillögu, ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. apríl 2016.