Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. febrúar 2017 var lögð fram umsókn
Grímu arkitekta ehf.
, mótt. 24. janúar 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits vegna lóðarinnar nr. 30 við Vesturgötu. Í breytingunni felst hækkun á nýtingarhlutfalli og gera nýja byggingarreiti, fjölgun íbúða úr 3 í 6, niðurrif á viðbyggingu við íbúðarhús og niðurfelling á heimild um hækkun þess, verndun þakhúss og verndun tveggja trjáa á lóðinni, samkvæmt uppdr.
Grímu arkitekta ehf.
, dags. 24. janúar 2017. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.