Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 2. október 2020 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. september 2020 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi kjallara og 1. hæðar þannig að tvær íbúðir verði í kjallara og ein á 1. og 2. hæð einbýlishúss á lóð nr. 28 við Vesturbrún. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. október 2020.
Gjald kr. 11.200