Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. febrúar 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. febrúar 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tvílyft íbúðarhús úr timbri með einni íbúð sem viðbót við núverandi einbýlishús á lóð nr. 15 við Lágholtsveg.
Stækkun: 156,4 ferm., 899,1 rúmm. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. febrúar 2019.
Meðfylgjandi erindi er séruppdráttur vegna makaskiptaafsals, frá Mælingadeild Skrifstofu borgarverkfræðings, dagsett 28. júlí 1995.
Gjald kr. 11.200