Lagt fram erindi af afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. júlí 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja bílskúr úr plastkubbum frá Varmamót með 150 mm steypukjarna, múrhúðað að utan og innan með loftuðu, sléttu, pappaklæddu timburþaki á lóð nr. 6 við Bugðulæk. Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda á lóð. dags. 10. júlí 2014 og samþykki eigenda á Bugðulæk 8, dags. 13. júlí 2014. Stærð: 38,7 ferm., 134,9 rúmm. Gjald kr. 9.823
Svar
Samþykkt að grenndarkynna fyrir hagsmunaaðilum að Bugðulæk nr. 4, 5, 7, 8 og 9 þegar leiðréttur uppdráttur hefur borist.