Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. ágúst 2014 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteyptan bílskúr norðaustan við fjölbýlishús á lóð nr. 6 við Bugðulæk. Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 10. júlí 2014 og sumra lóðarhafa Bugðulækjar 8 dags. 13. júlí 2014. Stærð: 43 ferm., 143 rúmm. Gjald kr. 9.500