Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 28. mars 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. mars 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að hækka ris og byggja kvisti á þakhæð hússins nr. 101 við Hverfisgötu. Til vara er spurt hvort leyfi fengist til þess að setja kvisti á húsið án þess að hækka rishæðina. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. apríl 2014.