Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. apríl 2014 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að stækka þrjá kvisti á norðurhlið, stækka þrjá kvisti og koma fyrir svölum á einum af þeim á suðurhlið og fá að breyta risi í íbúð á lóð nr. 70 Miklabraut. Íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 12. nóvember 2002 fylgir erindinu.