Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
111 ehf.
dags. 3. júlí 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals vegna lóðarinnar nr. 51 við Friggjarbrunn. Í breytingunni felst hækkun húss um eina hæð og fjölgun bílastæða í kjallara, samkvæmt uppdr. Mansdard- Teiknistofu ehf. dags. 30. maí 2014. Einnig er lögð fram greinargerð Mansard - Teiknistofu dags. 3. maí 2014. Tillagan var auglýst frá 31. október til og með 12. desember 2014. Engar athugasemdir bárust.