Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. maí 2014 þar sem sótt er um leyfi til að byggja sólskála við inngang á suðausturhlið parhúss á lóð nr. 33 við Akurgerði. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. maí 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. apríl 2014. Stækkun: 15 ferm., 47,1 rúmm. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Akurgerði 25, 31, 39 og 41 og Grundargerði 7.