Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. október 2014 þar sem spurt er hvort innrétta megi veitingaverslun í flokki II með þjónustu í sal og pizzu-eldhúsi í atvinnuhúsnæði, sem áður var sjoppa á jarðhæð í húsi á lóð nr. 123 við Ægisíðu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. október 2014.