Á fundi skipulagsfulltrúa 16. maí 2014 var lögð fram umsókn Faxaflóahafna dags. 14. maí 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðanna nr. 1 við Norðurgarð og 20 við Grandagarð. Í breytingunni felst hækkun á nýtingarhlutfalli, stækkun byggingarreita, að skilgreindur er nýr byggingarreitur fyrir sorpflokkunarstöð o.fl., samkvæmt uppdr. Teiknistofu Gylfa Guðjónssonar og Félaga ehf. dags. 8.maí 2014. Umsókninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.