Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. febrúar 2015 þar sem sótt er um leyfi til byggja hjólaskýli sem verður með steinsteyptri botnplötu, útveggir verða léttir timburveggir og þak klætt með asfaltpappa upp að norð-austurhlið húss nr. 20 á Grandagarði á lóð nr. 1 við Norðurgarð.
Stærð mhl. 10: 37,9 ferm., 115,0 rúmm. Gjald kr. 9.823