breyting á deiliskiplagi
Bergþórugata 14A
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 494
6. júní, 2014
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 2. júní 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. maí 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að hækka mæni um 35 cm og byggja þrjá kvisti á hvorri hlið fjölbýlishúss á lóð nr. 14A við Bergþórugötu. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. júní 2014.
Svar

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 6. júní 2014 eru ekki gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið á eigin kostnað, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar í umsögn. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.