Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 5. desember 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingafulltrúa frá 2. desember 2014 þar sem sótt er um leyfi til að byggja staðsteypta hjóla- og bílageymslu fyrir parhús nr. 30 á lóð nr. 28 - 30 við Blönduhlíð. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. desember 2014.
Bréf frá umsækjanda dags. 23. nóvember 2014 og samþykki frá Hamrahlíð 13, Blönduhlíð 26 og 28 fylgir. Stærð hjóla- og bílageymslu: 47,5 ferm., 142,5 rúmm. Gjald kr. 9.500