Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. júní 2014 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að reisa garðskála aftan við bílskúr inn í krika sem myndast á lóð nr. 28 við Egilsgötu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. júní 2014.
Ljósmynd og teikning af staðsetningu fylgir.