Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 4. júlí 2014 var lögð fram umsókn Orkuveitu Reykjavíkur dags. 30. júní 2014 um framkvæmdaleyfi vegna lagningu háspennustrengs í jörð og niðurtektar Elliðavatnslínu. Einnig eru lagðir fram afstöðu- og yfirlitsuppdrætti dags. 2. júlí, minnisblað Orkuveitu Reykjavíkur dags. 4. júlí 2014 og áhættumat ódags. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.