Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. apríl 2018 var lögð fram fyrirspurn Sólrúnar Melkorku Maggadóttur og Halldórs Arnar Ólafssonar mótt. 17. apríl 2018 ásamt bréfi Magga Jónssonar arkitekts ódags. varðandi stækkun hússins nr. 1 á lóð nr. 1-19 og 2-24 við Helluland, samkvæmt uppdr. Magga Jónssonar arkitekts dags. í desember 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. maí 2018.