Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. júlí 2015 þar sem sótt er um leyfi til að fjarlægja kvist sem fyrir er, byggja nýjan stærri og svalir á vesturhlið og nýjar tröppur og pall við aðalinngang einbýlishúss á lóð nr. 29A við Ránargötu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. júlí 2015. Erindi var grenndarkynnt frá 3. september til og með 1. október 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Húseigendur að Ránargötu 29 og 31, Stýrimannastíg 4, 6 og 8 og Bárugötu 30, dags. 24. september 2015. Stækkun: 6,27 rúmm. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. júlí 2015 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. júlí 2015 einnig fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands. Gjald kr. 9.823