Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Helgu Rakelar Stefnisdóttur dags. 29. október 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Þórsgötureits vegna lóðarinnar nr. 9 við Þórsgötu. Í breytingunni felst að gera kvist og svalir á suðurhlið hússins, endurbyggja bílgeymslu og koma fyrir bílastæði á lóðinni, samkvæmt uppdr. Mannvirkjameistarans ehf. dags. 29. október 2014. Tillagan var grenndarkynnt frá 7. nóvember til og með 5. desember 2014. Engar athugasemdir bárust.