Lögð fram umsókn Helgu Rakelar Stefnisdóttur dags. 29. október 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Þórsgötureits vegna lóðarinnar nr. 9 við Þórsgötu. Í breytingunni felst að gera kvist og svalir á suðurhlið hússins, endurbyggja bílgeymslu og koma fyrir bílastæði á lóðinni, samkvæmt uppdr. Mannvirkjameistarans ehf. dags. 29. október 2014.
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Þórsgötu 8, 10 og Lokastíg nr. 6 og 8.