Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. janúar 2020 var lögð fram fyrirspurn Telmu Lucindu Tómasdóttur dags. 3. janúar 2020 um breytingu á notkun bílskúrs á lóð nr. 8 við Grenimel í íbúð. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. janúar 2020.