Á fundi skipulagsfulltrúa 3. júlí 2015 var lögð fram fyrirspurn
Dalhúss ehf.
dags. 27. ágúst 2014 um að hækka húsið á lóð nr. 2 við Sjafnarbrunn, fjölga íbúðum og bílastæðum ásamt breytingu á innkeyrslu í bílageymslu. Einnig er lagt fram bréf skipulagsfulltrúa dags. 16. janúar 2015. Einnig er lagt fram bréf frá skrifstofu sviðsstýru dags. 5. júní 2015. Jafnframt er lögð fram tillaga Kristins Ragnarssonar ark. dags. 8. júní 2015 og nýir uppdrættir dags. 10. júní 2015, sem bárust embættinu 22. júní 2015. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. ágúst 2015.