Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 5. september 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. september 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að hækka þak og byggja kvisti, byggja glerskála á suðurhlið og innrétta tvær íbúðir í einbýlishúsi á lóð nr. 1 við Teigagerði. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. september 2014.