Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. september 2014 þar sem sótt er um leyfi til að rífa eldri viðbyggingu á bakhlið, byggja nýja á sama stað og til að breyta innra skipulagi í einbýlishúsi á lóð nr. 3 við Fjölnisveg. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. september 2014. Stækkun: ss ferm., ss rúmm. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Fjölnisvegi 1 og 5 og Sjafnargötu 2, 4 og 6.