Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 26. september 2014 var lögð fram fyrirspurn L120 ehf. dags. 23. september 2014 varðandi niðurrif og uppbyggingu á lóð nr. 12 við Laugaveg. Einnig er lagt fram minnisblað og tillaga Glámu/kím ehf. dags. 23. september 2014. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.