Á fundi skipulagsfulltrúa 7. nóvember 2014 var lögð fram umsókn
Mannverks ehf.
dags. 4. nóvember 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.240.2, Bankareits, vegna lóðarinnar nr. 12 við Laugaveg. Í breytingunni felst uppbygging á lóð o.fl., samkvæmt uppdr. Glámu/Kím ehf. dags. 4. nóvember 2014. Einnig er lögð fram greinargerð Glámu/Kím ehf. dags. 4. nóvember 2014 og umsögn Minjastofnunar dags. 31. október 2014. Umsókninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.