Lögð fram umsókn Þórðar Braga Jónssonar, mótt. 19. október 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits vegna lóðarinnar nr. 19C við Nýlendugötu. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit til norðurs og setja svalir ofan á útbyggingu á vesturhlið hússins, samkvæmt uppdr. VA arkitekta ehf., dags. 26. janúar 2016 síðast breyttur 14. október 2016.
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Nýlendugötu 19, 19A og 19B.