Lögð fram umsókn Þórðar Braga Jónssonar, mótt. 9. febrúar 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits vegna lóðarinnar nr. 19C við Nýlendugötu. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit á norðurhlið hússins og gera svalir ofan á útbyggingu neðri hæðar sem er á vesturhlið hússins, samkvæmt uppdr. VA arkitekta ehf., dags. 26. janúar 2016.
Svar
Vísað er til meðferðar verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 7.6 í Gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.